Flock Off! – prófanir hjá Bunkhouse Games 👀

Við hjá Bunkhouse Games bjóðum nemendum úr Flensborg að taka þátt í Flock Off! prófunum á skrifstofunni okkar á Strandgötu 29 í Hafnarfirði.

Hvernig þetta virkar

Prófanir fara fram í litlum hópum, mest fjórir í einu, og hver lota er frá kl. 16 til 18.

Að lokinni spilun tökum við stutt spjall þar sem við förum yfir upplifun, hvað virkaði vel og hvað má gera betur.

Við viljum fá ykkar hugmyndir um hvað gæti bætt leikinn.

Skráning

Skráning fer fram í þessu Google Sheets skjali fyrir neðan þar sem hægt verður að velja sér tímaslott:

Skráningarskjal

Staðsetning

Bunkhouse Games
Strandgata 29 Hafnarfirði

7 mínútna labb frá Flensborg

Pizza í boði

Fyrir þau sem vilja verður pizza í boði kl. 18:00.

Taktu þátt

Ef þú hefur áhuga á leikjum, vilt prófa eitthvað nýtt og hafa áhrif á þróun leiksins, þá viljum við endilega fá þig með.

Með kveðju,

Ólöf Svala Magnúsdóttir - olof@bunkhousegames.com